ÍslandsTurnar

rekur aðstöðuleigu fyrir fjarskiptafyrirtæki og ljósvakaútsendingar um land allt.
Við bætum stöðugt við staðsetningar okkar með nýjum fjarskiptaturnum og
snjöllum aðstöðulausnum.

ÍslandsTurnar hjálpa fjarskiptafyrirtækjum að
mæta þörfum viðskiptavina sinna fyrir nútímaleg og þráðlaus samskipti. Við tryggjum einnig aðstöðu fyrir útsendingar ljósvakamiðla. Með síaukinni þörf fyrir þráðlaus samskipti er okkar markmið að notendur á Íslandi séu alltaf tengdir, hvar og hvenær sem þeir eru.

Viðskiptavinir okkar leita stöðugt eftir aðstöðu fyrir búnað sinn með á margvíslegum stöðum og staðsetningum, svo sem á húsþökum bygginga eða í möstrum sem reist eru á leigulandi auk ýmissa annara leiða.

Vegna þessa geta fasteigna- eða landeigendur, í samstarfi við Íslandsturna, aukið tekjur sínar með því að leigja lítinn og ónotaðan hluta eigna sinna og þannig tekið þátt í þeirri sítengingu almennings, fyrirtækja og stofnana sem þróað nútímasamfélag gerir kröfu um. Nú þegar búa Íslandsturnar að slíkri aðstöðu á næstum 400 stöðum vítt og breitt um landið.

Fyrir okkur skiptir miklu máli að eiga góða  samvinnu við samstarfsaðila okkar. Við höfum mikla reynslu af rekstri og uppbyggingu aðstöðu fyrir þráðlaus fjarskipti og leggjum metnað okkar í að standa vel að verki.

Við leigjum. Við byggjum. Við starfrækjum.

Uppbygging nýrrar aðstöðu

ÍslandsTurnar vinna með fjarskiptafyrirtækjum og sveitarfélögum að uppbyggingu þráðlausrar aðstöðu á hentugum stöðum. Við leitumst eftir staðsetningum sem auka þjónustusvæði og afköst þessara mikilvægu þráðlausu samskiptalausna.

Með því að starfrækja mörg hundruð aðstöður höfum við á að skipa þekkingu og reynslu. ÍslandsTurnar geta tekið að sér uppbyggingu af hvaða stærð sem er og við vinnum verkið hratt og örugglega.

Hafðu samband til þess að kynna þér nánar.

Aðstöðuleiga

Með mörg hundruð aðstöðustaði í rekstri vítt og breitt um landið bjóða ÍslandsTurnar fjarskiptafyrirtækjum margvíslega aðstöðu og staðsetningar til þess að mæta þörfum þeirra til að tryggja þráðlausa tengingu viðskiptavina.

Starfslið okkar hefur umtalsverða reynslu við bæði rekstur og uppbyggingu á aðstöðu fyrir þráðlaus fjarskipti og ljósvakaútsendingar. Við bjóðum uppá langtíma samninga til að tryggja hag allra aðila og leggjum okkur fram um framúrskarandi þjónustu.

Aðstöðurekstur

Við bjóðum fasteignaeigendum möguleika á að auka virði eigna sinna og koma ónotuðum hlutum lands síns eða eignar í verð með því að leigja út ónotaða hluta þeirra fyrir þráðlaus fjarskipti. Starfslið ÍslandsTurna býður fram reynslu sína og þekkingu til þess að sjá um ferlið að öllu leyti, bæði hvað varðar uppbyggingu aðstöðunnar sem og um öruggan rekstur hennar og tryggja þannig land- og fasteignaeigendum reglulegar tekjur til langs tíma.

Hafðu samband til þess að kynna þér nánar.

ÍslandsTurnar var stofnsett árið 2021 og er eigandi að hátt í 400 fjarskiptaturnum víðs vegar um landið. ÍslandsTurnar njóta stuðnings DigitalBridge sem er aðaleigandi fyrirtækisins auk þess að vera einn eigandi fjölmargra sambærilegra fyrirtækja víða um heim. Þannig njóta ÍsandsTurnar samstarfs við systurfélög í öðrum löndum og leggja kapp á að veita viðskiptavinum sínum ávallt bestu lausnir.

Sítengdur heimur fólks og fyrirtækja

Hjá ÍslandsTurnum sérhæfum við okkur í lausnum sem tryggja þráðlaus fjarskipti og ljósvakaútsendingar með því starfrækja og byggja aðstöðu fyrir fjarskiptafyrirtæki og útvarpsþjónustu. Það gerum við með margvíslegum lausnum, svo sem háum fjarskiptamöstrum, snjöllum stauralausnum eða fyrirferðalitlum útfærslum á þökum húsa. Við leggjum áherslu á samnýtingu aðstöðunnar fyrir fleiri en einn fjarskiptaaðila og mætum þannig þörfum þeirra og samfélagsins alls fyrir hagnýtar lausnir.

ÍslandsTurnar hafa á að skipa starfs- og samstarfsfólki sem býr að viðamikilli reynslu á íslenska fjarskiptamarkaðnum og hafa starfað þar um árabil. Með þeirri þekkingu og samstarfi ÍslandsTurna við DigitalBridge systurfélögin leggjum við kapp á að veita framúrskarandi þjónustu.

Rekstur sem byggir á reynslu og þekkingu

Jóakim Reynisson framkvæmdastjóri ÍslandsTurna. Hann var áður tæknilegur framkvæmdastjóri Nova og þar áður tæknistjóri Tals og enn fyrr sérfræðingur hjá Símanum. Auk þess hefur Jóakim komið að rekstri og uppbyggingu farsímafyrirtækja erlendis, svo sem í Pólandi, Búlgaríu og Síle.

Ertu með skilaboð, spurningu:

11 + 11 =

Ármúli 6, 108 Reykjavík 
Sími. 560 9999
islandsturnar@islandsturnar.is
www.islandsturnar.is